Forsíða > Launadeild

FORSÍÐA

ÚTREIKNINGUR LAUNA

GREIÐSLUR

RAFRÆN SKIL
 
ÁRLEG SKIL

VIÐSKIPTAKERFI/
LAUNAKERFI

SKJALAGÁTT

Launadeild

Launasvið Fjárstoðar  sérhæfir sig í hverskyns launavinnslu fyrir fyrirtæki og stofnanir og annast í dag launavinnslu fyrir fjöldann allan af fyrirtækjum, bæði einkareknum og ríkisfyrirtækjum og stofnunum.  Hjá Fjárstoð starfa mjög hæfir launafulltrúar sem hafa áralanga reynslu og þekkingu af launamarkaðnum.

 

Mikið hagræði hlýst af því að útvista launavinnslum hjá fyrirtækjum. Þetta þýðir að fyrirtækin geta betur einblínt á kjarnastarfsemi sína og eru ekki að eyða tíma eða fjármunum í að halda úti sérstökum launafulltrúum. Þekking á launavinnslu er jafnframt sérhæfð og mikilvægt að launavinnslur séu vel unnar.

Fjárstoð býður þeim félögum sem hingað koma í þjónustu fast verð pr. launaseðil þannig að kostnaðurinn er að haldast í hendur við umfang fyrirtækja hverju sinni. Kostnaðurinn er hlutfallslega lægri eftir því sem launavinnslan er umfangsmeiri.

Fjárstoð leggur mikinn metnað í öryggi og meðferð skjala og upplýsinga og býður viðskiptavinum að nota svokallaða skjalagátt fyrir móttöku og sendingu gagna. Skjalagáttin er notuð til að senda skjöl á milli Fjárstoðar og viðskiptavinar og eru gögnin vistuð í sérstökum og öruggum gagnavistunarþjóni Fjárstoðar. Með þessu móti þurfa skjöl aldrei að fara í gegnum tölvupóst sem eykur til muna allt öryggi í meðferð gagna. Launaleynd er mis mikil innan fyrirtækja í dag og í ljósi þess útvista sum fyrirtæki aðeins hluta launavinnslunnar.

 Markmið launasviðs Fjárstoðar:

Er að veita viðskiptavinum bestu faglegu þjónustu og ráðgjöf á sviði launavinnslu sem grundvallast á áreiðanleika, ýtrustu fagmennsku og öryggi og koma til móts við þarfir þeirra og óskir.

Er að skapa eftirsóknarvert umhverfi fyrir metnaðarfullt og framsækið starfsfólk með mikla fagþekkingu og reynslu sem byggir starf sitt á að hagur viðskiptavinar sé ávallt hafður í fyrirrúmi. Í launavinnslu eru margir ólíkir þjónustuþættir og geta fyrirtæki valið um hversu marka þætti Fjárstoð annast. Þetta er meðal annars:

  • Útreikningur launa – mánaðarlegur eða óreglulegur
  • Rafræn móttaka launaupplýsinga
  • Greiðsla launa og launatengdra gjalda (Greiðslusvið)
  • Rafræn skil eða póstlagning launaseðla
  • Rafræn skil eða póstlagning skilagreina til lífeyrissjóða, stéttarfélaga, RSK, Tollstjóra og fleiri
  • Launamiðar í árslok og aðrar árslokavinnslur
  • Ráðgjöf til stjórnenda
  • Bókhaldslisti til bókunar í fjárhag
Að auki getur launasvið séð um að gera ýmsar launagreiningar, aðstoðað við áætlanagerð og tekið margvíslegar listaútprentanir út úr launakerfunum, til úrvinnslu fyrir viðskiptavini. Ef þú ert að leita að öruggum og góðum launafulltrúa ekki hika við að hafa samband við okkur.


Til baka

Fjárstoð ehf. | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi | Sími 556 6000 | Fax: 556 6001 | fjarstod@fjarstod.is