Forsíða > Bókhald

FORSÍÐA

FÆRSLA BÓKHALDS

SKRÁNING Í UPPÁSKRIFTAKERFI

BÓKHALDSFORRIT

Bókhald

Gerðu það sem þú gerir best ...  það gerum við


Fjárstoð byggir starfsemi sína á þeirri staðreynd að sífellt fleiri fyrirtæki telja hagsmunum sínum best borgið með því að einbeita kröftum sínum að kjarnastarfsemi sinni - að því einu sem skapar bein verðmæti fyrir fyrirtækið og hluthafa þess - en láta sérhæfða þjónustuaðila annast rekstur stoðdeilda þ.e. útvista..

Með því að útvista þá rekstrarþætti sem ekki teljast til kjarnastarfsemi hafa viðskiptavinir okkar notið aukinnar hagkvæmni við framkvæmd þeirra verkefna sem heyra undir fjármálasvið.  Í samningum okkar við viðskiptavini okkar eru markmið Fjárstoðar að tryggja: lækkun kostnaðar við rekstur stoðdeilda, betri og skilvirkari verkferla, aðgang að sérfræðiþekkingu og víðtækri reynslu fagfólks með fagleg vinnubrögð.  

Samkvæmt lögum ber hverjum þeim sem hefur rekstur með höndum að færa tvíhliða bókhald. Sem betur fer hafa þó þeir sem reka fyrirtæki gert sér grein fyrir því að færsla bókhalds er ekki bara til að framfylgja lögum heldur einnig til að vita fá upplýsingar um hvernig reksturinn gengur. Við hjá Fárstoð erum sérfræðingar í að veita þér þær upplýsingar sem þú þarft til að vita allt um fyrirtækið þitt. Hjá Fjárstoð starfar stór hópur vel þjálfaðra starfsmanna sem hefur áratuga reynslu af færslu bókhalds. Við erum stolt af því að vinna fyrir viðskiptavini okkar og setjum hjarta okkar í það að öll vinna fyrir viðskiptavini sé eftir lögum og reglum. Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þú vilt að bókhald þíns fyrirtækis sé í góðum höndum.

 



Til baka

Fjárstoð ehf. | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi | Sími 556 6000 | Fax: 556 6001 | fjarstod@fjarstod.is